Hönnun sem býr til heimili

Rut Kára hefur með sínu einstaka auga skapað þrjú hönnunarþemu fyrir íbúðirnar þar sem hvert og eitt þema hefur sitt séreinkenni en öll eiga þau sameiginlegt að skapa rými sem eru fáguð og elegant.

Markmiðið var að skapa falleg og hlý heimili með mildum tónum í litapallettu sem spila fullkomlega með birtunni sem íbúðirnar munu njóta í gegnum stóra gluggana.

Leiðarljós Rutar Kára í hönnuninni var að fólki eigi að líða vel í rýminu – að því líði eins og heima hjá sér frá fyrstu kynnum.

Þrjár samsetningar frá Rut Kára

Rut Kára hefur hannað þrjár fallegar samsetningar fyrir innri frágang íbúðanna er varðar liti og efnisval innréttinga, flísar, gólfefni og tæki. Kaupendur hafa tækifæri til að velja sér samsetningar eftir þörfum og smekk. Hægt er að skoða mismunandi samsetningar í sýningarsal GKS.

R1 Fönn – litasamsetning frá Rut Kára innanhússarkitekt á Orkureitnum
R1 Fönn
R2 Sandur – litasamsetning frá Rut Kára innanhússarkitekt á Orkureitnum
R2 Sandur
R3 Jörð – litasamsetning frá Rut Kára innanhússarkitekt á Orkureitnum
R3 Jörð

R1 Fönn

Birta og léttleiki skapa þægilegt andrúmsloft og tímalausan brag.

Fönn er látlaus samsetning þar sem innrétting er hvít en samval lita á borðum, veggjum og flísum gefa íbúðinni þægilegt andrúmsloft og tímalaust yfirbragð.

Búnaður

Vandaðar þýskar innréttingar

Mikil áhersla er lögð á að íbúðir séu búnar vönduðum innréttingum, eldhús- og baðtækjum og eru allar innréttingar sérhannaðar inn í hverja íbúð.

Allar innréttingar koma frá GKS í samvinnu við Nobilia, sem er virtur þýskur framleiðandi og eitt af leiðandi innréttingafyrirtækjum Evrópu. Framkvæmdaraðili hefur áralanga góða reynslu af notkun innréttinga frá GKS og Nobilia.

Innréttingarnar sem urðu fyrir valinu eru framleiddar úr sérlega vönduðu og endingargóðu efni sem hefur sannað gildi sitt. Efnin eru álagsprófuð og sést lítið á innréttingaefninu þó notkun sé mikil. Áferð þeirra er einnig afar fáguð, sem gefur hlýju og góða tilfinningu í hverju rými.

Allar eldhús- og baðinnréttingar eru í svokallaðri N-línu, með innfelldum höldum og lýsingu.

Innréttingar og skápar ná upp í loft – og milli veggja þar sem því er komið við. Þær eru innbyggðar í veggi íbúðar sem gefur rýminu aukið vægi og stílhreinna yfirbragð. Allar dyr innan íbúða eru yfirfelldar.

Auðvelt er að bæta við innréttingum eftir þörfum, eins og sjónvarpseiningum, hillum, aukaskápum og fleiru. GKS býður viðskiptavinum Orkureits upp á hátt þjónustustig vegna breytinga og viðhalds.

Eldhúsinnrétting og tæki

Við hönnun íbúða er mikil áhersla lögð á vinnuhagræði í eldhúsinu. Íbúðir eru afhentar með öllum hefðbundnum raftækjum í eldhúsi. Kæliskápar, frystiskápar og uppþvottavélar eru innbyggðar. Íbúðirnar eru búnar vönduðum og glæsilegum tækjum frá Siemens og íbúðir með eyjur eru með innbyggðu spanhelluborði frá Bora. Í helluborðinu er innbyggður gufugleypir og því þarf ekki eyjuháfa.

Gólfefni og hurðir

Gólf á baðherbergi og þvottahúsi eru flísalögð. Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir að mestu en víða er veggur eða hluti veggs skilinn eftir svo hægt sé að mála og fá fram hlýlegra yfirbragð. Milliveggir votrýma eru hlaðnir með steini. Að öðru leyti eru íbúðir afhentar án gólfefna en kaupendur geta fengið viðarparket sem Rut Kára hefur valið, eða harðparket lagt á gólf íbúða gegn hóflegu gjaldi. Allar innihurðir eru yfirfelldar í svörtum lit með viðaráferð og svörtum hurðarhúnum, samkvæmt vali innanhússarkitekts.

Bað og þvottaaðstaða

Við hönnun er mikil áhersla lögð á að baðinnréttingin sé rúmgóð og fallega frá gengin með lýsingu. Baðherbergi eru almennt einnig með þvottaaðstöðu í innréttingu innan baðherbergis. Glæsileg handlaug frá Nicos er innbyggð í innréttingu og glæsileg blöndunartæki fyrir handlaug og sturtu eru svört frá Grohe. Vegghengt salerni með innbyggðum vatnskassa er einnig frá Grohe.

Skilalýsing

Allar nánari útlistanir á innréttingum, frágangi og búnaði er að finna í skilalýsingum á íbúðasíðum.

Jákvæð orka í hverju rými

div