Íbúð nr. | 201 |
Birt stærð m² | 59.7 |
Geymsla m² | 5.2 |
Svalir/verönd m² | 3.8 |
Innrétting | R2 |
Verð í milljónum | 64.9 |
*Um nettóflöt íbúða/rýma er að ræða á teikningu. Vísað er í skráningartöflu viðkomandi matshlutar varðandi brúttó og birtar fermetrastærðir íbúða.
Bílastæði er ekki innifalið í verði.

Efnisval

R2 Sandur
Náttúrulegur sandlitur, mýkt og hlýja binda saman efni og liti.
Sandur er náttúrulegt þema þar sem grábrúnn sandlitur innréttinga leikur við sömu litatóna sem ganga í gegnum alla þætti hönnunar og kalla fram mýkt, ró og hlýju.
Búnaður
Eldhúsinnrétting og tæki
Íbúðir eru afhentar með öllum hefðbundnum raftækjum í eldhúsi. Vandað er til við val á tækjum sem henta innréttingunum vel og koma frá viðurkenndum gæðamerkjum; ísskápar, uppþvottavélar og blástursofnar koma frá Siemens og spanhelluborð frá Siemens eða Bora.
Gólfefni og hurðir
Gólf á baðherbergi og þvottahúsi eru að mestu flísalögð, sem og veggir á baði. Annars eru íbúðir afhentar án gólfefna en kaupendur geta fengið Quick-Step harðparket lagt á gólf íbúða gegn hóflegu gjaldi. Allar innihurðir eru yfirfelldar í svörtum lit með viðaráferð og svörtum hurðarhúnum, skv. vali innanhússarkitekts.
Bað og þvottaaðstaða
Baðherbergi eru almennt með þvottaaðstöðu innan baðherbergis og eru því tengingar fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Handlaug frá Nicos er innbyggð í innréttingu. Blöndunartæki handlaugar og sturtu eru svört frá Grohe og vegghengt salerni með innbyggðum vatnskassa einnig frá Grohe.
Skilalýsing
Allar nánari útlistanir á innréttingum, frágangi og búnaði er að finna í skilalýsingum á íbúðasíðum.